Lovren í læknisskoðun hjá Liverpool

Dejan Lovren er á leið til Liverpool.
Dejan Lovren er á leið til Liverpool. AFP

Dejan Lovren varnarmaður Southampton gengur undir læknisskoðun um helgina að því er fram kemur hjá BBC en félögin eru sögð hafa náð samkomulagi um 20 milljóna punda verðmiða á leikmanninum. 

Þessi 25 ára króatíski leikmaður sem spilaði alla leikina fyrir landslið sitt á HM hefur gefið það sjálfur út opinberlega að hann vilji fara til Liverpool og að hugur hans væri þegar kominn þangað.

Eftir læknisskoðunina mun Lovren fara til sinna nýju liðsfélaga frá Bítlaborginni en þeir eru um þessar mundir í æfingarferð um Bandaríkin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert