Gylfi skoraði úr aukaspyrnu – myndband

Gylfi Þór skoraði glæsilegt mark í dag.
Gylfi Þór skoraði glæsilegt mark í dag. AFP

Gylfi Sigurðsson fer svo sannarlega vel af stað með sínu nýja liði Swansea, en hann skoraði tvö og lagði upp eitt í 4:0 sigri á Plymouth í æfingaleik í dag eins og fram kom hér á mbl.is

Það sem gerir það enn glæsilegra er að Gylfi kom inn sem varamaður á 66. mínútu, og því má sannarlega tala um gott dagsverk hjá okkar manni. Annað mark hans var sérlega glæsilegt, beint úr aukaspyrnu, en það má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert