Sturridge og Henderson stæla Pulp Fiction

Daniel Sturridge og Jordan Henderson brugðu á leik.
Daniel Sturridge og Jordan Henderson brugðu á leik. AFP

Daniel Sturridge og Jordan Henderson, leikmenn Liverpool, fengu líklega dágóða summu í vasann þegar þeir tóku stutta vakt á Subway-stað í æfingaferð liðsins í Bandaríkjunum á dögunum.

Það var auðvitað allt í auglýsingaskyni gert, en þeir höfðu gaman af og eftir að hafa klárað myndatökurnar setti Sturridge saman þessa skemmtilegu mynd sem sjá má hér að neðan. Þeir félagar líkjast þar tveimur frægustu karakterum seinni tíma kvikmyndasögunnar, þeim Jules Winnfield og Vincent Vega, sem þeir Samuel L. Jackson og John Travolta gerðu ódauðlega í myndinni Pulp Fiction.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert