Fyrsta mark Fábregas fyrir Chelsea

Cesc Fábregas skoraði beint úr aukaspyrnu.
Cesc Fábregas skoraði beint úr aukaspyrnu. AFP

Diego Costa átti stóran þátt í öllum mörkum Chelsea þegar liðið vann 3:1-sigur á Vitesse Arnhem í æfingaleik í Hollandi í gærkvöld.

Costa lagði upp fyrsta markið fyrir Mohamed Salah sem skoraði auðveldlega í autt markið. Hann fiskaði svo aukaspyrnu um miðjan fyrri hálfleik sem Cesc Fábregas skoraði úr en þetta var fyrsta mark Fábregas fyrir Chelsea.

Chelsea komst svo í 3:0 korteri fyrir leikslok þegar Costa átti sendingu á Nemanja Matic sem skoraði. Heimamenn náðu að minnka muninn í blálokin en þá var Mitchell Beeney kominn í markið í stað Petr Cech.

Diego Costa var heimamönnum erfiður.
Diego Costa var heimamönnum erfiður. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert