Forráðamenn AC Milan neita því að tilboð frá Liverpool upp á 17,6 milljón pund hafi borist í ítalska framherjann Mario Balotelli. Ekkert tilboð hafi borist í leikmanninn og því ekkert hæft í þessum sögusögnum.
„Á þessu augnabliki hefur okkur ekki borist neitt tilboð í Balotelli,“ er haft eftir Adriano Galliani varaforseta AC Milan í ítölskum fjölmiðlum.
„Við getum því ekki átt í neinum viðræðum. En við sjáum til hvernig málin þróast áður en félagaskiptaglugginn lokar 1. september,“ sagði Galliani.