Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri Real Madrid staðfesti það á fréttamannafundi í dag að Argentínumaðurinn Ángel di María væri búinn að fara fram á sölu frá félaginu.
Di María hefur ítrekað verið orðaður við Manchester United í sumar en félög á borð við Paris Saint-Germain hafa einnig áhuga á þessum öfluga kantmanni.
„Di María er búinn að biðja um að fá að fara í suamr og hafnaði tilboði frá félaginu,“ sagði Ancelotti í dag.
„Leikmaðurinn þarf að finna lausn. Ef að hann verður ennþá hérna þegar markaðurinn lokast þá verður hann með okkur á komandi tímabili án nokkurra vandræða,“ sagði Ancelotti.