Balotelli á leið í læknisskoðun - Ekki klár gegn City

Mario Balotelli gæti spilað fyrsta leik sinn fyrir Liverpool þegar …
Mario Balotelli gæti spilað fyrsta leik sinn fyrir Liverpool þegar liðið mætir Tottenham eftir rúma viku. AFP

Liverpool hefur náð samkomulagi við umboðsmann Mario Balotelli um kaup og kjör og mun leikmaðurinn fljúga til Englands síðar í dag til að gangast undir læknisskoðun.

Fátt virðist því geta komið í veg fyrir að Balotelli gangi í raðir Liverpool frá AC Milan. Kaupverðið er sagt nema 16 milljónum punda og mun Balotelli semja til fjögurra ára.

Balotelli mun þó ekki geta þreytt frumraun sína með Liverpool gegn sínu gamla liði Manchester City á mánudaginn. Félagaskiptin hefðu þurft að ganga í gegn fyrir hádegi í dag til þess. Hann ætti hins vegar að vera klár í slaginn gegn Tottenham á White Hart Lane sunnudaginn 31. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert