Neil Warnock var í dag ráðinn knattspyrnustjóri Crystal Palace til tveggja ára en liðið hefur verið stjóralaust síðan Tony Pulis sagði upp störfum rétt áður en flautað var til leiks í ensku úrvalsdeildinni.
Warnock er öllum hnútum kunnugur hjá Palace en hann var við stjórnvölinn hjá félaginu frá 2007 til 2010. Síðan hann hætti hafa fimm stjórar verið hjá liðinu.