Argentínumaðurinn Angel Di Maria hefur fengið úthlutað keppnistreyju númer 7 hjá Manchester United en margir frægir kappar hafa leikið í sjöunni fyrir félagið í gegnum tíðina.
Þar má nefna leikmenn eins George Best, Bryan Robson, Eric Cantona, David Beckham og Cristiano Ronaldo. Sá síðasti sem lék í treyju númer 7 var Ekvadorinn Antonio Valencia en hann lék í því númeri tímabilið 2012-13 en í fyrra ákvað hann að söðla um og spila í treyju með númerinu 25.
Di Maria leikur að öllum líkindum sinn fyrsta leik með Manchester United í hádeginu á laugardaginn en þá sækir liðið nýliða Burnley heim.