Van Gaal: Vonbrigði

Louis van Gaal eftir leikinn gegn Burnley í dag.
Louis van Gaal eftir leikinn gegn Burnley í dag. AFP

Hún hefur verið þung byrjunin hjá Louis van Gaal knattspyrnustjóra Manchester United og lærisveinum hans í ensku úrvalsdeildinni en United er aðeins með 2 stig eftir þrjá leiki í deildinni.

„Við vorum sterkara liðið og sérstaklega í seinni hálfleik. Við sköpuðum okkur færi en við verðum að skora. Þess vegna erum við ekki að vinna þessa leiki. Ég merki framfarir en við verðum að vinna. Félag eins og Manhester United verður að vinna leiki eins og þennan. Við erum með tvö sig af níu mögulegum og það eru vonbrigði,“ sagði Van Gaal eftir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert