Chicharito samdi við Real Madríd

Javier Hernandez er kominn til Real Madríd.
Javier Hernandez er kominn til Real Madríd. AFP

Mexíkóski framherjinn Javier "Chicharito" Hernandez er orðinn leikmaður spænska knattspyrnuliðsins Real Madríd. Chicharito kemur til Real á eins árs lánssamningi frá Manchester United, en Real Madríd hefur svo forkaupsrétt á framherjanum.

Chicharito hefur verið hjá Manchester United frá árinu 2010 og skorað 59 mörk í 154 leikjum. Þá á hann að baki 66 A-landsleiki fyrir Mexíkó og hefur skorað í þeim 36 mörk.

Fylgist með félagaskiptaglugganum í beinni hér á mbl.is í allan dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert