Falcao til Manchester United

Falcao er á leið til Manchester United.
Falcao er á leið til Manchester United. AFP

Mónakó hefur samþykkt tilboð enska knattspyrnuliðsins Manchester United í kólumbíska framherjann Radamel Falcao sem hljóðar upp á eins árs lánssamning að því er fram kemur í enskum fjölmiðlum. Samkvæmt þeim fregnum á Falcao einungis eftir að gangast undir læknisskoðun hjá United og ganga frá sínum málum við félagið.

Falcao hefur skorað 2 mörk í 3 leikjum fyrir Monaco í haust og skoraði 11 mörk í 19 leikjum á síðustu leiktíð. Monaco keypti Falcao frá Atlético Madríd í fyrrasumar en hann skoraði 70 mörk í 91 leik fyrir Atlético Madríd á tveimur árum á Spáni og 72 mörk í 87 leikjum fyrir Porto í Portúgal á árunum 2009-2011.

Fylgist með félagaskiptaglugganum í beinni hér á mbl.is í allan dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert