Tottenham fékk þann úthaldsbesta í Frakklandi

Benjamin Stambouli með Tottenham-treyjuna.
Benjamin Stambouli með Tottenham-treyjuna. Ljósmynd/Tottenhamhotspur.com

Tottenham hefur fengið til sín varnarsinnaða miðjumanninn Benjamin Stambouli frá Montpellier í Frakklandi. Félagið lét annan miðjumann, Lewis Holtby, fara að láni til Hamburg.

Stambouli er 24 ára gamall og hefur verið prímusmótor í liði Montpellier þar sem hann lék fyrst með aðalliðinu árið 2010. Hann lék 37 af 38 deildarleikjum liðsins á síðustu leiktíð, alls 3.330 mínútur sem er meira en nokkur annar útileikmaður í frönsku 1. deildinni gerði.

Tottenham virðist einnig ætla að láta brasilíska miðjumanninn Sandro fara en hann er á leið til QPR ef að líkum lætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert