Azpilicueta með nýjan fimm ára samning

Cesar Azpilicueta í leik með Chelsea.
Cesar Azpilicueta í leik með Chelsea. AFP

Cesar Azpilicueta varnarmaður í liði Chelsea hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið að því er fram kemur á vef Chelsea í dag.

Azpilicueta, sem er 25 ára gamall, gekk í raðir Chelsea frá franska liðinu Marseille í ágúst 2012 og hefur komið við sögu í 95 leikjum með liðinu og skorað eitt mark sem hann gerði í sigri gegn Arsenal í deildabikarkeppninni á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert