Enn mögulegt að Cleverley fari til Aston Villa

Tom Cleverley gæti ennþá endað í Aston Villa.
Tom Cleverley gæti ennþá endað í Aston Villa. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið Aston Villa gerði Manchester United seint í gærkvöld tilboð í miðjumanninn Tom Cleverley um að fá leikmanninn á láni út leiktíðina. United samþykkti tilboðið, en Aston Villa bíður þess nú að Enska knattspyrnusambandið úrskurði hvort lánið megi fara í gegn.

Cleverley hefur leikið 78 leiki og skorað 5 mörk fyrir United á síðustu þremur árum. Hann hefur legið undir talsverðri gagnrýni stuðningsmanna United í upphafi þessarar leiktíðar og enn virðist möguleiki á því að hann haldi til Birmingham og leiki með Aston Villa í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert