Welbeck formlega kominn til Arsenal

Danny Welbeck er kominn til Arsenal.
Danny Welbeck er kominn til Arsenal. AFP

Arsenal hefur loks gengið frá kaupunum á enska framherjanum Danny Welbeck frá Manchester United, en kaupverðið er sagt vera 16 milljónir punda og skrifar hann undir fimm ára samning við félagið.

Mikil óvissa ríkti um hvar Danny Welbeck yrði niðurkominn í lok félagaskiptagluggans. Enskir miðlar skiptust á að segja að ýmist væri hann að nálgast Arsenal eða hefði neitað þeim og yrði áfram hjá Man. Utd.

Félögin komust loks að samkomulagi um kaupverðið seint í kvöld og fengu aukinn frest til að ganga frá lausum endum sem nú eru í höfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert