Ekki á leið í aðgerð

Robin van Persie.
Robin van Persie. AFP

Robin van Persie, framherji Manchester United, neitar þeim sögusögnum að hann þurfi að gangast undir aðgerð á hné. „Ég veit ekki hvaðan þessi orðrómur kemur en í sannleika sagt þá er ég ekki að fara að heimsækja spítala til að fara í aðgerð,“ sagði Van Persie í viðtali við sjónvarpsstöðina FOX Sports í gær.

Van Persie segist meira en tilbúinn að berjast fyrir sæti sínu í liðinu eftir komu kólumbíska framherjann Radamel Falcao til félagsins. „Ég er ánægður með komu Falcao. Hann gerir okkur að betra liði og hann þarf að berjast fyrir sínu sæti eins og ég,“ sagði Van Persie. gummih@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert