Costa sló til Gylfa - myndband

Diego Costa skorar í leiknum á laugardaginn en Gylfi Þór …
Diego Costa skorar í leiknum á laugardaginn en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar fylgjast með. AFP

Spænski landsliðsframherjinn Diego Costa var maður leiksins í sigri Chelsea á Swansea um helgina, þar sem hann skoraði þrennu í 4:2-sigri Chelsea.

Ekki er víst að Costa hefði átt að spila allan leikinn en í fyrri hálfleiknum sló hann til Gylfa Þórs Sigurðssonar sem sá um að dekka Costa í aukaspyrnu. Þeir Costa og Gylfi áttust við án þess að dómarar leiksins virtust sjá til og stimpingarnar enduðu með því að Gylfi lá eftir á vellinum.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert