Henderson skipaður varafyrirliði Liverpool

Jordan Henserson ásamt knattspyrnustjóranum Brendan Rodgers.
Jordan Henserson ásamt knattspyrnustjóranum Brendan Rodgers. AFP

Jordan Henderson hefur verið skipaður nýr varafyrirliði hjá Liverpool af knattspyrnustjóranum Brendan Rodgers.

Henderson, sem er 24 ára gamall, hefur verið þrjú ár í herbúðum Liverpool en hann kom til liðsins frá Sunderland. Hann hefur leikið 136 leiki fyrir Liverpool og hefur í þeim skorað 13 mörk.

Henderson var lykilmaður í Liverpool-liðinu á síðustu leiktíð sem barðist hart um meistaratitilinn en hann missti aðeins úr þrjá leiki og það vegna leikbanns.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert