Hull og West Ham skildu jöfn

Frá viðureign Hull og West Ham í kvöld.
Frá viðureign Hull og West Ham í kvöld. AFP

Hull City og West Ham skildu jöfn, 2:2, í fjörugum lokaleik 4. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en liðin áttust við á heimavelli Hull í kvöld.

Heimamenn náðu í tvígang forystu í leiknum. Fyrsta markið skoraði Abel Hernández á 39. mínútu leiksins en Enner Valencia jafnaði metin á 50. mínútu. Mohamed Diame, fyrru leikmaður West Ham, kom Hull aftur í forystu á 64. mínútu en West Ham jafnaði metin með sjálfsmarki Curtis Davies þremur mínútum síðar.

Hull er er með 5 stig eftir fjóra leiki en West Ham 4.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert