José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segist vera með betri leikmannahóp í höndunum en í fyrra. Chelsea er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga eftir fjóra leiki og nýir leikmenn á borð við Diego Costa og Cesc Fábregas hafa þegar stimplað sig inn með látum.
„Ég vil ekki vera að bera saman leikmannahópa en hópurinn okkar er betri en á síðustu leiktíð. Við höfum fleiri lausnir. Jafnvægið í hópnum er gott,“ sagði Mourinho á fréttamannafundi í dag.
Mourinho staðfesti að Diego Costa, sem hefur verið að glíma við meiðsli í læri, yrði klár í stórleikinn við Englandsmeistara Manchester City á sunnudaginn, leik sem gæti ráðið miklu í titilbaráttunni þó of snemmt sé að segja til um það núna.
„Það er alltaf gott að mæta stórliðum því það gerir vinnuna auðveldari fyrir mig. Við berum mikla virðingu fyrir City því þeir áttu þetta alveg skilið [að verða meistarar] en við höfum líka trú á okkur sjálfum. Þetta er bara einn leikur en þegar lið sem ætla sér titilinn mætast þá skipta stigin meira máli,“ sagði Mourinho.
„Það eru allir klárir í slaginn. Diego Costa er ekki í besta ástandinu en hann byrjar leikinn. Ef hann spilar þá verður hann ekki með gegn Bolton [í deildabikarnum á miðvikudag],“ sagði Mourinho.