Skrautlegt sigurmark Liverpool (myndskeið)

Katrín Ómarsdóttir í leik með Liverpool.
Katrín Ómarsdóttir í leik með Liverpool. Ljósmynd/liverpoolfc.com

Katrín Ómarsdóttir og stöllur hennar í Liverpool skoruðu skrautlegt sigurmark gegn Birmingham þegar liðin áttust við í deildinni um síðustu helgi.

Birmingham jafnaði með skondnu marki eftir mistök markvarðar Liverpool. Liverpool tók miðju og Fara Williams gerði sér lítið fyrir og skoraði með skoti úr miðjuboganum þar sem hún sá að markvörður Birmingham var illa staðsettur og ekki viðbúinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert