Cole: Kannski hefðum við átt að vinna

Ashley Cole.
Ashley Cole. AFP

Bakvörðurinn Ashley Cole leikmaður Roma var ánægður með frammistöðu sinna manna gegn Englandsmeisturum Manchester City þegar liðin skildu jöfn, 1:1, á Ethiad vellinum í Manchester í kvöld.

„Þetta var góð frammistaða eftir að hafa lent undir svona snemma í leiknum. Við höfðum trú á því að geta náð góðum úrslitum og kannski áttum við að fara með sigur af hólmi. Við vörðumst vel en við mættum hingað til að vinna og því eru þessi úrslit svolítið vonbrigði en stigið er engu að síður gott fyrir okkur,“ sagði Cole eftir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert