Herrera ekki með í næstu leikjum

Ander Herrera.
Ander Herrera. AFP

Spænski miðjumaðurinn Ander Herrera verður ekki með Manchester United í næstu leikjum en félagið staðfesti í dag að hann hefði rifbeinsbrotnað í leik liðsins við West Ham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn.

Herrera er 25 ára gamall og var keyptur af Athletic Bilbao fyrir tæpar 30 milljónirpunda í sumar en hann hefur þegar skorað tvö mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum með United í úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert