Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í dag að Arsenal yrði ekki sektað vegna logandi blysa sem kastað var inná völl félagsins þegar það mætti Galatasaray frá Tyrklandi í Meistaradeild Evrópu á Emirates-leikvanginum í London fyrr í þessum mánuði.
Stuðningsmenn tyrkneska liðsins voru þar að verki en Arsenal hafði verið kært fyrir að standa ekki nægilega vel að öryggisgæslu með þeim afleiðingum að tyrkneskir áhorfendur hefðu náð að smygla blysunum inná völlinn.
UEFA hafði áður sektað Galatasaray um 40 þúsund pund fyrir tiltækið og tilkynnti aí dag að Galatasaray yrði að greiða fyrir þær skemmdir sem stuðningsmennirnir hefðu valdið á vellinum.
Arsenal vann leikinn, 4:1, en þau mætast aftur í Istanbúl 9. desember.