Van Gaal: Heimskulegt að tala um 3 mánuði

Louis van Gaal.
Louis van Gaal. AFP

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, segir það hafa verið heimskulegt af sér að fullyrða að hægt yrði að dæma hann af störfum sínum eftir þrjá mánuði á Old Trafford.

Van Gaal lét ummæli á þá leið falla eftir að hann tók við United-liðinu og sagði að yfirleitt bæru starfsaðferðir hans ávöxt eftir þrjá mánuði eða svo.

„Það var afar heimskulegt af mér að láta þetta út úr mér. Fyrir vikið tala fjölmiðlamenn ekki um annað en þessa þrjá mánuði,“ sagði van Gaal  við fjölmiðlamenn í gær en United er í 6. sæti deildarinnar sem stendur.

Liðið leikur gegn WBA í kvöld og gæti þar unnið sinn þriðja leik í röð í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert