Remy vonast til að geta mætt United

Loic Remy í leiknum gegn Maribor í gær.
Loic Remy í leiknum gegn Maribor í gær. AFP

Framherjinn Loic Remy er bjartsýnn á að geta spilað með Chelsea á sunnudaginn þegar liðið etur kappi við Manchester United á Old Trafford.

Remu fann til í nára eftir að hann skoraði fyrsta mark Chelsea í stórsigri Maribor í Meistaradeildinni í gærkvöld.

„Ég var dálítið stífur og mér leið ekki vel og þess vegna ákvað ég að koma af velli. Ef manni líður ekki vel þá er betra að skipta úr af fyrir leikmann sem er 100% klár. Ég held að þetta sé ekkert slæmt og ég er vongóður um að geta verið með á sunnudaginn,“ segir Remy en allt útlit er fyrir að Diego Costa missti af leiknum gegn United vegna meiðsla.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert