Victor Valdés æfir með Man.Utd

Victor Valdés.
Victor Valdés. AFP

Spænski markvörðurinn Victor Valdés er á leið til æfinga hjá Manchester United en knattspyrnustjórinn þar, Louis van Gaal, bauð honum að koma og æfa hjá félaginu á meðan hann kemur sér í gang á ný eftir uppskurð fyrr á þessu ári.

Valdés hætti hjá Barcelona að síðasta tímabili loknu en hann hafði spilað ríflega 500 leiki fyrir Katalóníufélagið. Hann er því með lausan samning og ekki liggur fyrir ennþá hvar hann heldur ferlinum áfram.

Valdés mun ekki æfa með aðalliði United fyrst í stað en á vef félagsins er sagt að hann muni til að byrja með æfa undir eftirliti læknaliðsins á Old Trafford.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert