Leeds rak knattspyrnustjórann

Darko Milanic.
Darko Milanic. Ljósmynd/leedsunited.com

Leeds United, gamla stórveldið í enska fótboltanum, rak í dag knattspyrnustjórann Darko Milanic úr starfi en aðeins 32 dagar eru liðnir frá því hann var ráðinn stjóri liðsins.

Leeds tapaði fyrir Wolves 2:1 í ensku B-deildinni í dag og í kjölfarið var Milanic látinn poka sinn en þetta var sjötti leikur liðsins undir hans stjórn án sigurs.

Með ósigrinum í dag er Leeds í 18. sæti og er aðeins fimm stigum frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert