Liverpool án Sturridge í risaleikjum

Daniel Sturridge.
Daniel Sturridge. AFP

Stuðningsmenn Liverpool verða að bíða lengur eftir því að sjá Daniel Sturridge inni á vellinum því nú er ljóst að hann missir af stórum leikjum Liverpool-liðsins í næstu viku.

Liverpool hafði vonast til að geta teflt Sturridge fram á nýjan leik um helgina en svo verður ekki. Leikmaðurinn hefur ekki jafnað sig af meiðslum í kálfa og auk þess að missa af leiknum á móti Newcastle á laugardaginn verður hann fjarri góðu gamni þegar Liverpool mætir Real Madrid í Meistaradeildinni á þriðjudaginn og þegar Liverpool fær Chelsea í heimsókn á laugardaginn í næstu viku.

Ekki er reiknað með því að Sturridge verði klár í slaginn fyrr en 23. nóvember þegar Liverpool mætir Crystal Palace en framherjinn snjalli hefur verið frá keppni síðan í ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert