Falcao spilar ekki gegn City

Falcao.
Falcao. AFP

Kólumbíski framherjinn Radamel Falcao verður ekki með Manchester United í leiknum gegn Manchester City á sunnudaginn en fyrirliðinn Wayne Rooney er klár í slaginn.

Louis van Gaal, stjóri United, upplýsti þetta á fréttamannafundi sem nú stendur yfir. Falcao hefur ekki jafnað sig af meiðslum en Rooney er búinn að afplána þriggja leikja bann. Fregnir bárust af því í vikunni að Rooney væri meiddur en Van Gaal sagði við fréttamenn í dag að þær fréttir hafi ekki verið réttar. Þá sagði hann að möguleika gæti Antonio Valencia verið með en hann hefur verið frá í síðustu leikjum vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert