Fer Gerrard frá Liverpool?

Mario Balotelli og Steven Gerrard
Mario Balotelli og Steven Gerrard AFP

Steven Gerrard fyrirliði Liverpool segir koma til greina að fara til annars liðs bjóðist honum ekki nýr samningur hjá Liverpool.

Gerrard, sem er 34 ára gamall, hefur leikið allan sinn feril með Liverpool en tók sín fyrstu skref hjá akademíu félagsins.

„Ég mun ekki hætta næsta sumar og ég ætla mér að halda áfram að spila. Við verðum að sjá hvort það verður hjá Liverpool eða annars staðar. Það fer eftir því hvað Liverpool vill gera. Ef félagið býður mér ekki samning þá verð ég að skoða hvað annað er í boði,“ segir Gerrard í viðtali við enska blaðið Daily Mail.

Gerrard, sem sagði skilið við enska landsliðið í sumar, hefur spilað hátt í 700 leiki fyrir Liverpool og hefur verið í algjöru lykilhlutverki með liðinu mörg undanfarin ár.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert