Erum miður okkar

Rickie Lambert fagnar með Steven Gerrard í kvöld.
Rickie Lambert fagnar með Steven Gerrard í kvöld. AFP

Rickie Lambert framherji Liverpool skoraði eitt mark fyrir Liverpool í 2:2 jafnteflinu gegn Ludogorets í Meistaradeildinni í kvöld. Lambert var ánægður með frammistöðu Liverpool og telur að liðið hafi svarað gagnrýninni sem upp spratt eftir tapið gegn Crystal Palace um liðna helgi.

„Við svöruðum nokkrum af þeim gagnrýnisröddum sem fengu að heyrast eftir leikinn gegn Crystal Palace. Leikurinn í dag átti að vinnast og við náðum því næstum því,“ sagði Lambert sem var að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik í Meistaradeildinni.

„Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikurinn minn í Meistaradeildinni og það var gott að skora. Við erum hins vegar miður okkar að fá markið á okkur þarna í lokin en þetta snerist um frammistöðuna í dag og hún var betri,“ sagði Lambert.

Stigið þýðir að Liverpool mun þurfa að sigra Basel í lokaleik liðanna á Anfield í næstu umferð þar sem svissneska liðið beið lægri hlut fyrir Real Madrid í kvöld, 1:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert