Tottenham tryggði sér í kvöld sæti í 32ja liða úrslitum Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu með sigri á Partizan Belgrad frá Serbíu, 1:0, á White Hart Lane í London.
Benjamin Stambouli, franskur varnartengiliður sem hefur aðeins spilað einn úrvalsdeildarleik með Tottenham, skoraði sigurmarkið á 49. mínútu. Stambouli er 24 ára gamall og kom til enska liðsins frá Montpellier í lok ágúst.
Tottenham er með 11 stig, Besiktas 9, Asteras Tripolis 5 og Partizan Belgrad 1 stig. Tottenham og Besiktas eru þar með bæði komin áfram og mætast í Istanbúl í lokaumferðinni.
Talsverðar tafir urðu á leiknum í kvöld en hann var stöðvaður um tíma eftir að stuðningsmenn Partizan höfðu í þrígang hlaupið inná völlinn í fyrri hálfleiknum.