Shaw úr leik út árið

Luke Shaw í leik gegn WBA.
Luke Shaw í leik gegn WBA. AFP

Luke Shaw leikmaður Manchester United og enska landsliðsins leikur ekki meira á þessu ári.

Shaw, sem er 19 ára gamall og gekk í raðir United frá Southampton í sumar, meiddist á ökkla í sigurleik Manchester United gegn Arsenal um síðustu helgi og er reiknað með að hann verði frá keppni næstu sex vikurnar.

Shaw kemur til með að missa af næstu átta leikjum United en mikil meiðsli hafa herjað á leikmannahóp Manchester-liðsins allt tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert