Balotelli fór ekki með Liverpool-liðinu

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Ítalski framherjinn Mario Balotelli fór ekki með Liverpool-liðinu til Bournemouth en Liverpool sækir toppliðið í ensku B-deildinni heim í ensku deildabikarkeppninni í kvöld.

Balotelli, sem lék seinni hálfleikinn á móti Manchester United í deildinni á sunnudaginn, varð eftir í Liverpool þar sem hann verður í meðferð hjá sjúkraþjálfurum Liverpool en Ítalinn er nýkominn til baka eftir meiðsli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert