Chelsea og Liverpool drógust saman í undanúrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld en dregið var til þeirra þegar átta liða úrslitunum var lokið.
Tottenham mætir hinsvegar C-deildarliði Sheffield United í hinni viðureigninni. Leikið er heima og heiman, seinnipartinn í janúarmánuði.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Sheffield United, sem spilaði mjög vel í gærkvöld og verðskuldar að vera í undanúrslitunum. Þetta verður ekki auðvelt," sagði Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, en Sheffield United sló óvænt út hans fyrrverandi lærisveina í Southampton með 1:0 sigri í gærkvöld.