Moyes með Januzaj í sigtinu

Adnan Januzaj í baráttu við Gylfa Þór Sigurðsson.
Adnan Januzaj í baráttu við Gylfa Þór Sigurðsson. AFP

David Moyes þjálfari spænska knattspyrnuliðsins Real Sociedad sem landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason leikur með ætlar að styrkja lið sitt í janúarglugganum.

Enskir og spænskir fjölmiðar greina frá því í dag að belgíski landsliðsmaðurinn Adnan Januzaj sem leikur með Manchester United sé einn þeirra leikmanna sem Moyes vilji fá en hann vill fá leikmanninn unga að láni frá United, liðinu sem hann stýrði í 10 mánuði.

„Forsetinn hefur verið mjög góður við mig og ég hef í hyggju að fá nokkra leikmenn að láni. Janúar er aldrei besti tíminn en ef það eru leikmenn sem geta komið hingað og hjálpað til þá er möguleiki á að svo verði,“ segir Moyes.

<br/><br/>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert