Tottenham og Liverpool tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum ensku deildarbikarkeppninnar í knattspyrnu.
Tottenham burstaði Newcastle 4:0 í Lundúnum. Nabil Bentaleb, Nacer Chadli, Harry Kane og Roberto Soldado skoruðu mörkin en sá síðastnefndi hefur legið undir mikilli gagnrýni fyrir sína frammistöðu á tímabilinu.
Raheem Sterling skoraði tvívegis fyrir Liverpool sem vann Bournemouth 3:1 á útivelli. Lazar Markovic skoraði einnig áður en Dan Gosling minnkaði muninn fyrir heimaliðið.
Chelsea og C-deildarlið Sheffield United tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitunum.