Sami Hyypiä hættur hjá Brighton

Sami Hyypia er hættur hjá Brighton.
Sami Hyypia er hættur hjá Brighton. AFP

Finninn Sami Hyypiä hefur sagt af sér sem knattspyrnustjóri enska B-deildarfélagsins Brighton en félagið tilkynnti rétt í þessu að uppsögn hans hefði verið samþykkt.

Hyypiä, sem lék með Liverpool frá 1999 til 2009, tók við Brighton í sumar en liðið hefur ekki náð sér á strik undir hans stjórn og er í þriðja neðsta sæti B-deildarinnar að loknum 22 umferðum, fjórum stigum frá því að komast úr fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert