Januzaj fer ekki frá United

Adnan Januzaj.
Adnan Januzaj. AFP

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United segir ekki koma til greina að lána belgíska landsliðsmanninn Adnan Januzaj í janúar eins og vangaveltur hafa verið um.

Belginn ungi hefur lítið komið við sögu í leikjum Manchester United síðustu vikurnar og hafa nokkur lið sóst eftir að fá leikmanninn að láni. Þeirra á meðal ensku úrvalsdeildarliðin Everton og Hull City og spænska liðið Real Sociedad sem Alfreð Finnbogason leikur með.

„Hann er leikmaður Manchester United og verður það áfram,“ sagði van Gaal þegar hann var spurður út í það hvort Januzaj færi á lán í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert