Jóhann Berg bjargaði stigi fyrir Charlton

Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson. Ljósmynd/charlton

Jóhann Berg Guðmundsson var hetja Charlton þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Cardiff í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Jóhann Berg jafnaði metin fyrir sína menn með þrumuskoti af um 25 metra færi en skömmu áður hafði hann skot í markstöngina. Hann lék allan leikinn og það gerði líka Aron Einar Gunnarsson fyrir Cardiff en mark liðsins kom eftir langt innkast hans. Charlton lék manni færri frá 33. mínútu leiksins.

Þetta var fjórða mark Jóhanns Bergs á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert