Óvíst hvað Di Maria verði lengi frá

Angel Di Maria
Angel Di Maria AFP

Argentínumaðurinn Angel Di Maria var fjarri góðu gamni með Manchester United í sigurleiknum gegn Newcastle á Old Trafford í dag.

Di Maria meiddist á mjöðm æfingu United um jólin og að sögn Louis van Gaal er ekki vitað hversu leikmaðurinn verði lengi frá en Manchester United sækir Tottenham heim á sunnudaginn og þykir ólíklegt að Argentínumaðurinn verði með í þeim leik.

„Hann meiddsst á síðustu æfingu liðsins. Hann hætti í upphituninni og við verðum bara að bíða og sjá hver meiðslin eru. Ég held að það sé ekki um neina tognum að ræða en ég er ekki læknir,“ sagði van Gaal eftir leikinn við Newcastle en Di Maria var nýkominn á ferðina eftir meiðsli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert