Gylfi Þór Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu skoraði rétt í þessu stórglæsilegt mark fyrir Swansea City og kom liðinu yfir gegn Aston Villa, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni.
Gylfi tók aukaspyrnu rétt utan vítateigs á 13. mínútu, nokkuð til vinstri, og þrumaði boltanum beint í markvinkilinn fjær, algjörlega óverjandi fyrir Brad Guzan í marki Aston Villa.
Þetta er þriðja mark Gylfa í deildinni á þessu keppnistímabili en hann skoraði áður gegn Manchester United og Arsenal.
EPL: Sigurdsson wonderful freekick goal... Swansea 1-0 Aston Villa
https://t.co/lUvcpVB80A
— Football News Alert (@Footy_Layne24) December 26, 2014