„Vildi sýna stjóranum að hann geti notað mig meira“

Tomas Rosicky fagnar marki sínu ásamt Danny Welbeck.
Tomas Rosicky fagnar marki sínu ásamt Danny Welbeck. AFP

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég er í byrjunarliðinu á tímabilinu og ég vildi sýna stjóranum að hann geti notað mig meira,“ sagði Tékkinn Tomas Rosicky eftir sigur Arsenal gegn QPR í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Rosicky skoraði annað Arsenal í leiknum sem fagnaði 2:1 sigri á heimavelli sínum, Emirates Stadium.

„Fyrir alla leikmenn er erfitt þegar þú spilar ekki í einhvern tíma og svo kemur kallið skyndilega. En þú verður að vera undirbúinn undir slíkt og ég hef lagt hart að mér á æfingum. Þetta er sérstakur tími ársins fyrir stuðningsmennina þegar allur heimurinn fylgist með ensku úrvalsdeildinni og ég ætlaði að standa mig vel,“ sagði Rosicky en þetta var fyrsta mark í deildinni á tímabilinu og aðeins fjórði leikurinn sem hann kemur við sögu í.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert