Lallana frá keppni næsta mánuðinn

Adam Lallana.
Adam Lallana. AFP

Adam Lallana miðjumaður Liverpool og enska landsliðsins í knattspyrnu verður frá keppni næsta mánuðinn.

Lallana, sem gekk til liðs við Liverpool frá Southampton fyrir tímabilið, meiddist í sigurleiknum gegn Swansea í síðustu viku þar sem hann skoraði tvö mörk en miðjumaðurinn knái komið sterkur inn í síðustu leikjum eftir erfiða byrjun með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert