Eiður Smári fékk 6 í einkunn

Eiður Smári í baráttu við Mamadou Sakho á Anfield í …
Eiður Smári í baráttu við Mamadou Sakho á Anfield í kvöld. AFP

Eiður Smári Guðjohnsen fékk 6 í einkunn hjá Sky Sport fyrir frammistöðu sína með Bolton í leiknum gegn Liverpool á Anfield í kvöld.

Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í viðureign liðanna í 4. umferð ensku bikarkeppninnar og liðin þurfa að mætast aftur á heimavelli Bolton í næstu viku.

Eiður lék allan tímann og stóð fyrir sínu. Hæstu einkunn leikmanna Bolton fékk markvörðurinn Ádam Bogdan en ungverski markvörðurinn fékk 8. Enginn leikmaður Liverpool fékk hærri einkunn en 6.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert