Chelsea aflýsir fréttamannafundi

José Mourinho fylgist með þegar leikmenn Chelsea og Liverpool aðskilja …
José Mourinho fylgist með þegar leikmenn Chelsea og Liverpool aðskilja Diego Costa og Emre Can. EPA

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea ætlar ekki að vera með neinn fréttamannafund á morgun, eins og venjan er, fyrir stórleik Chelsea og Manchester City sem fram fer á laugardaginn.

Engin ástæða er gefin upp fyrir þessu en enska knattspyrnusambandið hefur sektað Mourinho um 25 þúsund pund og kært Diego Costa fyrir að stíga viljandi á Emre Can, leikmann Liverpool, í leik liðanna á þriðjudagskvöldið. Enskir fjölmiðlar gera ráð fyrir að þessi ráðstöfun tengist því að einhverju leyti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert