Costa andmælir kærunni

Diego Costa átti í útistöðum við marga leikmenn Liverpool á …
Diego Costa átti í útistöðum við marga leikmenn Liverpool á þriðjudagskvöldið. Hér er reynt að aðskilja hann og Steven Gerrard eftir að þeim lenti saman. Báðir fengu gula spjaldið fyrir atvikið. AFP

Diego Costa, framherji Chelsea, ætlar að andmæla kæru enska knattspyrnusambandsins á hendur honum sem gefin var út eftir að hann steig á Emre Can, leikmann Liverpool, í undanúrslitaleik deildabikarsins á þriðjudagskvöldið.

Costa á yfir höfði sér þriggja leikja bann ef hann verður fundinn sekur um að hafa stigið viljandi á andstæðing sinn. Dómarinn sá ekki atvikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert