Framherjinn Peter Crouch og miðjumaðurinn Glenn Whelan skrifuðu í dag undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarliðið Stoke City.
Leikmennirnir framlengdu samninga sína við félagið um tvö ár og eru nú samningsbundnir því fram á sumar 2017.
Crouch, sem er 31 árs gamall, kom til Stoke frá Tottenham árið 2011 en Whelan, sem einnig er 31 árs gamall, kom til félagins árið 2008.